26.3.2025 | 13:58
Danska - enska
Það má ef til vill rifja upp söguna af ráðherranum sem hélt ræðu í Kaupmannarhöfn á sinni bestu skóladönsku. Þegar henni var lokið þá hallaði einn daninn sér að íslendingi og sagði að það væri stórkostlegt hvað íslenskan og danskan væru lík
Hann hefði bara næstum skilið hvað ráðherrann var að segja.
Ég hef líka margoft séð "slökkna" á íslendingum þegar hlýtt er á danskan fyrirlestur þó þessir sömu hafi kokhraustir lýst yfir að þeir skildu vel dönsku eftir margra ára dönskunám í íslenskum skólum.
Háttsettir yfirmenn hjá Evrópusambandinu tala margir ensku með svo miklum hreim að þeir eru illskiljanlegir en ég held nú að enginn slái þó japönum við í undarlegum áherslu í hrynjanda, sem ég er ekki vanur enda alinn upp með amerískar bíómyndir þar sem kúasmalarnir töluð með mildum drafandi suðurríkja hreim líkt og Jimmy Carter fyrrum forseti.
![]() |
Guðmundur um ræðuna: Fall er fararheill |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.3.2025 | 17:41
Hvað er að þessu liði
Maður getur bara vonað að almenningur hafni algjörlega þessum stríðsæsingarfólki í næstu kosningum. Óheyrilegt fjármagn í drápstól sem verður svo náttúrlega að réttlæta með notkun þeirra.
Fara að nota kjarnorkuvopn þegar USA og Rússland ráða yfir 90% af virkum kjarnaoddum í heiminum þannig að ein slík flaug frá Póllandi til Rússlands gæti valdið keðjuverkun og eytt öllu lífi á jörðinni allavega eins og við þekkjum það.
Þó fólk hati Trump þá ætti það að líta fram hjá göllum hans þegar kemur að friði í Úkraínu og ekki finna öllum tillögum hans um frið allt til foráttu bara af því tillögunar koma frá Trump
Sama fólkið og segir að friður sé ekki mögulegur nema að öllum kröfum Selenskys sé fullnægt telur væntanlega að mismunun geti verið jákvæð.
Eitthvað sem er ofar skilningi venjulegs fólks
![]() |
Vill kanna möguleika kjarnorkuvopna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.3.2025 | 14:56
Tékkóslóvakía og Afganistan - rússar fóru burt
Í ágúst 1968 var ég að ljúka sumardvöl minni í Danmörku í heimavistarskóla í Randers á Jótlandi. Þá réðust rússar inn í Tékkóslóvakíu og maður gat þarna horft á sameiginlegt lítið svart hvítt sjónvarp á sal og reynt að skilja heimsviðburði.
Ég hafði ekki heyrt íslensku talaða síðan ég yfirgaf Kastrup flugvöllinn og síðustu samskiptin við Íslending voru að Vigfús tollari stimplaði vegbréfið mitt í júní við brottför frá Keflavík.
Ég man að þegar við spurðum einn ungan kennara þarna í Randers hvort það væri að koma heimstyrjöld þá taldi hann svo ekki vera nema fólk færi að vera með læti?
Ég horfði lengi á tíkalla símann og íhugaði að hringja heim en lét það vera og skrifaði sendibréf í staðinn sem síðan Ólafur 17 ára bróðir minn svaraði því foreldar okkar reyndust vera á ferðalagi.
Ef til vill gerir þessi upplifun úr 13 ára æskunni það að verkum að ég vil frið í heiminum þó svo að ég sé uppalin í Keflavík með ameríska leikfélaga og horfandi á fjöldamargar amerískar bíómyndir og sjónvarpsþætti þar sem lausnirnar voru yfirleitt ekki friðsamlegar og allt svart/hvítt bæði í litavali og lausnum.
Trump vill frið í Úkraínu. Uppákoman í Hvíta húsinu um daginn leysir USA undan loforðum forvera Trumps um ótakmarkaða hernaðaraðstoð og hefur strax haft þau áhrif að "leiðtogarnir" í Evrópu tala nú loks um frið á neyðarsamkomum sínum sem hafa verið mjög tíðar undanfarið en skilað undraverðum litlum árangri.
Rússar eru ekki lengur í Tékkóslóvakíu né heldur Afganistan
![]() |
Bretar og Frakkar munu vinna að friði með Úkraínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.1.2025 | 11:38
Sýndarveruleiki
Undarlegt þetta fjártjón en sem gamall íslendingur setur maður það ósjálfrátt í samband við að bóndi hafi misst rollurnar sínar.
Þannig að ríkið á að bæta útgerðinni það að kindurnar sem hugsanlega voru uppi á afréttum og útgerðinni hefði hugsanlega átti að vera úthlutað hafi ekki skilað sér af fjalli í sláturhúsið og síðan á borð neytenda sem hefðu þá borgað útgerðinni.
Fullt verð skal greitt þó svo að ekkert vinnuframlag hafi þurft í þessum sýndarveruleika
Hér eru komin sterk rök fyrir hóflegum veiðigjöldum sem færu þá að hluta í sjóð til að geta greitt bætur af þessu tagi í framtíðinni. Sjóðurinn þarf að vera einhverjar hundruð milljarða miðað við að þessi krafa vegna nokkra Makríl titta sem veiða átti í óþökk ESB var upp á 10 milljarða
![]() |
Makrílmálið fer fyrir Hæstarétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sweden ends funding for UN Palestinian aid agency UNRWA
Dec 20 (Reuters) - Sweden will no longer fund the U.N. refugee agency for Palestinians (UNRWA)
https://www.reuters.com/world/sweden-will-no-longer-fund-unrwa-aid-agency-minister-says-2024-12-20/
![]() |
Þessum hryllingi verður að linna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2024 | 11:43
Jafvel flaggskipið dregur ekki að áhorfendur
Norska kvennalandsliðið sem óumdeilanlega er flaggskip norsks handbolta með alla sína titla og núna á leið í EM undanúrslit
spilaði í gær við Sviss fyrir nær tómum sal - 1500 miðar keyptir
svo maður getur rétt ímyndað sér hvernig mætingin er á "minni" leiki heima í Noregi
![]() |
Þórir: Staðan er alvarleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2024 | 14:56
Svíar gefast upp á kolefnisniðurdælingu
Í Svíþjóð hefur í 2 áratugi verið að unnið að tæknilegri lausn niðurdælingar á 150 000 tonnum af koldíoxíði frá orkuverinu í Jordbro en nú eru þeir búnir að gefast upp!
Hvers eiga Hafnfirðingar að gjalda að halda þessari vitleysu áfram og flytja langar leiðir koldíoxíð til að dæla niður í grunnvatnið í óheyrilegu magni
"markaðurinn fyrir söfnun koldíoxíð er of óþroskaður og engin fjárhagslegur ávinningur af verkefninu"
Vattenfall avbryter klimatsatsning att fånga in koldioxid | SVT Nyheter
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2024 | 18:24
Kæra Píratar?
Það væri stílbrot hjá Pírötum ef þeir kærðu ekki þessa uppákomu og heimtuðu endurkosningu
Miðað við fyrri kærur
![]() |
Greip óvart skanna af kjörstað og fór í búð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2024 | 20:16
COP29
Óumdeilt er að miðað við höfðatölu þá sendum við flesta þátttakendur á COP29
Þar er nú verið að samþykkja að ríku þjóðirnar (þó ekki Kína né Sádí Arabía) greiði skriljónir til fátæku þjóðanna vegna hugsanlegra hlýnunar jarðar
Fátæku þjóðirnar vilja meira en ríku þjóðirnar eru tregar til að samþykkja meiri útgjöld en hvernig hafa þessir embættismenn sem eru þarna leyfi til að samþykkja þessi útgjöld fyrir Íslands hönd?
Útgjöld sem koma úr vösum skattgreiðanda og þeir peningar verða því ekki notaðir til fjármagna hin fögru kosningaloforð flokkanna
UN Climate Change Conference Baku - November 2024 | UNFCCC
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2024 | 11:40
Aðspurða
Líkt og berlega kom fram í USA þá eru þessar "skoðanakannanir" algjört Prump
Þó sumir sem eru í frambooði hafi greinilegan vilja að láta þessar kannanir stýra Íslandi þá ber að virða lýðræðislegan vilja meirihlutans þegar hann er spurður en ekki eitthvað valið úrtak úr menginu sem passar skoðunum örsmárra háværra hópa
![]() |
Helmingur telur leyfisveitingu óeðlilega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Hnoðri
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 99
- Frá upphafi: 17257
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 77
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar