21.7.2022 | 11:32
Kettir?
Hvað með kettina?
Ég hef ansi oft rölt Seltjarnarneshringinn í alskyns veðri (sérstaklega þegar WC var lokað) og alltaf sá maður einhverja ketti.
Heimilsköttum fjölgaði gífurlega í Covid og eftir að Covid "lauk" þá er Kattholt og Dýrahjálp með ógrynni katta sem hefur verið komið þangað að leita að nýju heimili.
Það er barnaskapur að halda öllum köttunum sem orðið hafa heimilslausir sé skilað þangað.
Í gær var ég á sumarbústaðarlóð nálægt Selfossi, ég hef nokkrum sinnum horfst þar í augun á Þresti sem hafði valið að hafa hreiðið sitt í augnhæð í miðju skógarþykkni, en í gær lágu ungarnir á jörðinni hálfétnir, fullir af maðk og flugu.
Ég viðurkenni að þarna er talsverður trjágróður, þéttur Sigurskúfur, Spánarkerfill, Hvönn og fleira sem er nú í um 1,5m hæð svo fjöldi dýra gæti auðveldlega falið sig þarna (jafnvel minkur) án þess að ég verði þeirra nokkurn tíma var.
En kettina hef ég séð og reyni m.a. að setja grindur utan um þær jurtir sem anga vel svo þau séu ekki bæld niður. En flestir garðeigendur hafa upplifað að sum blóm eru eftirsótt kattarbæli
Minkur rústaði kríuvarpinu á Seltjarnarnesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hnoðri
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.