Borðfótur er ekki fótleggur

Við lestur þessarar fréttar þá reyndi ég að muna eftir viðlíka látum þessi 10 ár sem ég bjó í Lundi en án árangurs. Ef til vill voru fjölskyldurnar þá bara ekki orðnar svona fjölmennar.

Ég bjó á jarðhæð og eina nóttina vaknaði ég við einhver bölvuð læti sem ég taldi vera kettir en svo var einhver meiri umgangur svo það endaði með að ég drattaðist á fætur og út  þá sá ég að borð sem hafði verið inn á svölum hjá mér var komið út í garð. Ég fór að ná í það og sá þá að það vantaði einn borðfótinn. Gapandi hissa og varla vaknaður sé ég hvar 2 fílelfdir lögrelgumenn koma fyrir hornið og leiða á milli sín velklæddan mann, gott ef hann var ekki í frakka úr Kasmír. Þegar ég er að fylgjast með þeim þá beygir annar lögreglumaðurinn sig niður og tekur upp borðfótinn. Ég tek náttúrlega á rás til þeirra og segi „det er min fot“  (þetta er fótleggurinn minn) þeir horfa hissa á mig og á tímabili hélt ég að þeir ætluðu að handtaka mig líka þarna á náttfötunum um miðja nótt en þá mumlaði maðurinn á milli þeirra eitthvað svo þeir þurftu að hrista hann aðeins til og segja honum að steinþegja.  Síðan horfðu þeir á hvorn annan áður en önnur lögreglan hvað upp þann Salamónsdóm að sá handtekni hefði ekki notað borðfótinn og því þyrftu þeir ekki á honum að halda sem sönnunargagn. Svo ég fékk að fara heim með minn fót og setja borðið aftur inn á svalir.

Talandi um svalir þá náði nágranni minn sér eitt sinn í hrúgu af lifandi kjúklingum og henti þeim upp á svalir hjá sér svo heyrði maður lætin í hópnum þegar hann fór og náði í einn og einn til að slátra.

Annars ríkti bara ró og friður þó maður muni eftir einni skotárás en hún var í Stokkhólmi og vakti heimsathygli


mbl.is Hópslagsmál víða í Lundi í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ævisaga Carters er áheyrileg

Mæli alveg með að hlusta á hann lesa ævisögu sína
Hefur skemmtilegan suðurríkja hreim en samt mjög skýrmæltur

A Full Life Audiobook By Jimmy Carter cover art

mbl.is Lykillinn að 75 ára löngu hjónabandi Carter-hjónanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átti að gefa lífeyrissjóðunum Íslandsbanka?

"Íslands­banki yrði færður úr hönd­um rík­is­ins með því að selja hann ís­lensk­um líf­eyr­is­sjóðum - ekki þyrfti nauðsyn­lega að fara útboðsleiðina." 
Þessi rök halda bara ekki vatni og þetta var fín tímasetning eins og sást best á þátttökunni í útboðinu

Lífeyrissjóðirnir keyptu mest svo þetta er bara rugl í manninum

Úthlutun lífeyrissjóða í hlutafjárútboði Íslandsbanka
Chart
 
Lífeyrissjóður
 
Úthlutað (kaupverð í milljónum króna)
LIVE*3.650
Gildi*3.650
Almenni 1.300
Brú (A og B deild)875
Stapi700
Frjálsi503
Birta 480
Festa440
Lífeyrissjóður bankamanna300
Lsj. starfsmanna Reykjavíkurborgar250
Lífsverk220
Íslenski161
EFÍA 95
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja80
Lífeyrissjóður bænda55
LSBÍ39
Lífeyrissjóður Rangæinga20
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands12
SL lífeyrissjóðurTók þátt, gaf ekki upp fjárhæð
LSRGaf ekki upp

mbl.is Áherslur svipaðar nú og í einkavæðingu fyrir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyndið?

Sumir trúa skilyrðislaust á spálíkan um hamfarahlýnun
en neita svo að nota rafræn skilríki og hvað þá nota fullgilda rafræna undirritun
rökin og vísindin skipta þar engu máli


mbl.is „Þurfum að breyta því hvernig við hugsum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúnaðarstimpla allar embættisfærslur

Hjá Reykjavíkurborg eru Píratar í valdaaðstöðu og þar misnotar Dóra Björt stöðu sína sem formaður Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs iðulega með að trúnaðarstimpla sínar embættisfærslur t.d.

fundargerð 14
5. Fram fer kynning á niðurstöðum greiningar Capacent á rekstri Upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar. Trúnaðarmál.
fundargerð 15
6. Bókanir undir þessum lið eru færðar í trúnaðarbók mannréttinda- nýsköpunar- og lýðræðisráðs.
Fram fer trúnaðarmerkt kynning þjónustu- og nýsköpunarsviðs á UTR – Vegferðin framundan.

Þessi trúnaðarbók hjá henni Dóru er orðin ansi þykk og í hróplegu ósamræmi við það sem Píratar á Alþingi þykjast standa fyrir eða er þetta bara allt hræsni hjá þeim og á ekki við þá frekar en siðareglur 


mbl.is Þögnin rofin og markmið Pírata skýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gömul frétt

Gluggagæirinn (Peeping Tom) Obama tékkar á naktri MerkelObama


mbl.is Macron og Merkel krefjast svara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álgningarseðill

Í dag höfum við tækifæri til að sjá svart á hvítu hvað mikið af því sem við greiðum í skatt fer til Sveitarfélaganna
Helmingurinn af því sem ég greiði fer til Reykjavíkurborgar og við það bætast ýmis önnur gjöld einsog fasteignagjald og fl.

Dagur varð borgarstjóri með því að lofa stuðningsmönnum í borgarstjórn  fjármagn í alskyns gæluverkefni. Mesta bruðlið er sennilega í "Stafræn Reykjavík" þar trúnaðarstimplar Píratinn Dóra Björt formaður Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs hverja fundargerðina á fætur annarri til að reyna hylja bruðlið

 


mbl.is Skilur reiði foreldra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipuritið býður ekki upp á neina ábyrgð

einfalt auðskilið skipulag var fyrir 3 árum

einfalt   

 

 

 

 

 

 

En í meðförum Dóru Bjartar  (takið eftir að hvergi er samt minnst á GÆÐI eða ÖRYGGI)

skipurit_thon1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ástandið hefur sem sagt bara hríðversnað  þó Halldóri hafi þótt það slæmt 2018

David

 


mbl.is Umgjörð ekki fullnægjandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfitt að skilja

Suma hluti skilur maður bara ekki.
Utanríkisráðherra var að senda 285 M til að aðstoða Jemen en ef maður googlar "yemen sanctions" þá fær maður upp langan lista af viðskiptahindrinum sem eru í gangi til að svelta yfirvöld í Jemen til hlíðni.
Meðal annars þá endurnýjaði Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna viðskiptahindranir núna 24 febrúar
og verið er að biðja Biden USA forseta að hefja hernaðaríhlutun í landinu.
 
 

mbl.is 285 milljónir til mannúðaraðstoðar í Jemen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hnoðri

Höfundur

Grímur Kjartansson
Grímur Kjartansson

Ég hef starfað við upplýsingaöryggiskerfi síðan ég tók að mér vorið 2001 að sjá um lögboðið eftirlit Löggildingarstofu með fullgildum rafrænum undirskriftum og strax þá um haustið fékk ég viðurkenningu BSI sem úttektaraðili fyrir BS7799 og hef síðar fengið viðurkenningu BSI sem úttektaraðili fyrir ISO27001:2005 og ISO27001:2013.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • fátækir hælisleitendur
  • flotta
  • magga
  • skitur
  • leyen

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 17599

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband