Færsluflokkur: Bloggar
20.10.2022 | 21:48
ESB gefur skít í trillukarla
Viðreisn skammast í mörgum ræöum og skrifum út í íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið
Viðreisn vill ganga í ESB þar sem drýpur smjör af hverju strái að þeirra dómi
Eins og sjá má í eftirfarandi frétt þá eru það kontórkallar í Brussel sem ákveða hver má veiða hvað í ESB.
Kontóristanir gefa skít í trillukarla eins og segir í fyrirsögninni og hafa margoft hótað íslendingum refsiaðgerðum vvegna Makrílveiða sem stundaðar eru í höfnum Íslands
Besluten om strömmingskvoterna: De skiter i oss kustfiskare | SVT Nyheter
Hefur Fiskistofa aldrei heyrt um meðalhófsreglu? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.9.2022 | 20:24
ESS, orkupakki og ESB
Í dag kom Framkvæmdarstjórnin með tillögur um að skattleggja hagnað orkufyrirtækjanna og ætlast er svo til að þeir fjármunir (140 billion) fari til almennings og fyrirtækja fer ekki örugglega bensíngjaldið á Íslandi allt til vegaframkvæmda?
Almenningur og fyrirtæki í ESB borga svívirðilega hátt orkuverð, fyrirtækin sem selja orkuna eru svo skattlögð og almenningur ásamt fyrirtækjum fær bótagreiðslur frá Ríkinu - sæstreng til Íslands strax.
Einnig skyldar Framkvæmdastjórnin aðildarlöndin til að minnka orkunotkunina um 5%, engar leiðbeiningar fylgdu um hvernig löndin eiga að fara að þessu þið eigið bara að koma með pappíra sem sýna fram á þetta en sjálfagt verða settar á fót eftirlitSSveitir Framkvæmdarstjórnarinnar til að fylgjast með þessu pappírum sem verða eins áreiðanlegir og upprunavottorð rafmagns
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.9.2022 | 14:46
Afganistan
Googli maður hvert fór allir peningarnir þá fær maður oftast upp Afganistan
En í Reykjavík er öllum ljóst hvert peningar skattgreiðenda fóru
10 000 000 000 (og beiðni um meir hjá Borgarráði) fór í hugbúðnarhús sem ENGU hefur skilað
Skjalakerfið Hlaðan er enn eins galtómt og Bragginn og engar gagnlegar upplýsingar þar að finna
Verktakar brosa allan hringinn ef minnst er á Þróunar- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar
Og þar er enn verið að ráða fjölda sérfræðinga á himinháum launum, sérfræðingar sem skattgreiðendur hafa aldrei saknað að ekki væru að störfum hjá Reykjavíkurborg t.d.
Leiðtogi samþættingar
Leiðtogi vefreksturs
Leiðtogi netreksturs
Verkefnastjóri þjónustuupplifunar ÞON
Teymisstjóri tækniþjónustu
Sérfræðingur í gagnahögun
Borgin stígur á bremsuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2022 | 20:10
10 000 000 000
Þarf nokkuð að minna á 10 000 000 000 verkefnið Stafræn Reykjavík sem samkvæmt Persónuverndarfulltrúanum hefur helst afrekað að
"Reykjavíkurborg tilkynni Persónuvernd um mögulega öryggisbresti oftast allra"
og sviðsstjóri þjónustu- og nýsköpunarsviðs sem segir starfsmenn setja upp alskyns hugbúnað sem ekki sé á ábyrgð Reykjavíkurborgar því hann
" sé ekki samþykkt af upplýsingatæknisviði"
Svo er það Hlaðan Markmið verkefnisins eru eftirfarandi:
Hlaðan komin í rekstur hjá miðlægri stjórnsýslu fyrir árslok 2020
Að Hlaðan verði notuð eins og ætlað er
Lokun eldri kerfa og uppsögn leyfa Lykilafurð
Innleitt kerfi Hlöðunnar hjá miðlægri stjórnsýslu Reykjavíkurborgar
Ekkert af ofantöldu er komið í rekstur þó mjög loðið sé og ekkert svið er að nota Hlöðuna sem skjalavistunarkerfi
Kostar heimilin 3,9 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2022 | 11:32
Kettir?
Hvað með kettina?
Ég hef ansi oft rölt Seltjarnarneshringinn í alskyns veðri (sérstaklega þegar WC var lokað) og alltaf sá maður einhverja ketti.
Heimilsköttum fjölgaði gífurlega í Covid og eftir að Covid "lauk" þá er Kattholt og Dýrahjálp með ógrynni katta sem hefur verið komið þangað að leita að nýju heimili.
Það er barnaskapur að halda öllum köttunum sem orðið hafa heimilslausir sé skilað þangað.
Í gær var ég á sumarbústaðarlóð nálægt Selfossi, ég hef nokkrum sinnum horfst þar í augun á Þresti sem hafði valið að hafa hreiðið sitt í augnhæð í miðju skógarþykkni, en í gær lágu ungarnir á jörðinni hálfétnir, fullir af maðk og flugu.
Ég viðurkenni að þarna er talsverður trjágróður, þéttur Sigurskúfur, Spánarkerfill, Hvönn og fleira sem er nú í um 1,5m hæð svo fjöldi dýra gæti auðveldlega falið sig þarna (jafnvel minkur) án þess að ég verði þeirra nokkurn tíma var.
En kettina hef ég séð og reyni m.a. að setja grindur utan um þær jurtir sem anga vel svo þau séu ekki bæld niður. En flestir garðeigendur hafa upplifað að sum blóm eru eftirsótt kattarbæli
Minkur rústaði kríuvarpinu á Seltjarnarnesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2022 | 08:57
Hetjudáð, hugleysi eða heimska
Hetjudáð, hugleysi eða heimska
Hvað á að kalla það þegar heimtað er að fólk setji líf sitt og limi í hættu við að bjarga öðrum líkt og hetjurnar hafa gert í ótal amerískum bíómyndum.
Í slíkum myndum þá er líka fólk oft barið hraustlega en stendur aftur upp brosandi. Dýrin hafa mennskar tilfinningar og eru oftar en ekki skynsamari en fólkið.
Sumir virðast frekar vilja lifa í þessari Hollywood draumsýn en horfast í augu við raunveruleikann.
Lögreglumenn horfðu á mann drukkna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2022 | 06:25
Sláandi léleg vinnubrögð
Sláandi léleg vinnubrögð hjá 10.000.000.000 verkefninu Stafræn Reykjavík
Frumkvæðisathugun Persónuverndar leiddi í ljós margvísleg brot Reykjavíkurborgar á persónuverndarlöggjöfinni með notkun kerfisins, m.a. var vinnslusamningur við Seesaw um vinnslu persónuupplýsinga í nemendakerfinu ekki í samræmi við lög, mat á áhrifum á persónuvernd sem Reykjavíkurborg framkvæmdi vegna vinnslunnar var háð verulegum ágöllum og fræðsla til foreldra og forráðamanna nemenda var ófullnægjandi auk þess sem vinnsla persónuupplýsinga skólabarna í nemendakerfinu studdist ekki við fullnægjandi vinnsluheimild. Þá var ekki gætt að meginreglum persónuverndarlöggjafarinnar um meðalhóf og lágmörkun gagna og um sanngjarna og gagnsæja vinnslu, m.a. þar sem Seesaw vinnur persónuupplýsingar foreldra og forráðamanna nemenda í því skyni að beina að þeim markaðssetningu ..
Fastlega má gera ráð fyrir að Persónuvernd sé að skoða fleiri kerfi hjá Stafrænu Reykjavík
Reykjavíkurborg fær 5 milljón króna sekt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.5.2022 | 15:54
Enda þessi hlutabréfamarkaður ólíkindatól
Líkt og sjá má á þessu 8% "hruni" út af lítlilli sölu í Kauphöllinni í Stokkhólm í morgun
https://www.svt.se/nyheter/ekonomi/skramselhicka-pa-borsen-plotsligt-jat
Umboðsmaður Alþingis ætlar ekki að skoða bankasölu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2022 | 20:21
Hver bestur eða verstur
Í gær kaus fólk í Frakklandi þann sem þeim þótti skárri af 2 slæmum kostum
Sama gerðist í USA fók vildi ekki Biden en síður Trump
Sumir á Íslandi furða sig á fylgi stjórnarflokkanna en eftir að hafa fylgst með stjórnarandstöðunni í dag þá er hún klárlega verri kosturinn flest annað
Sakaði formenn stjórnarflokkanna um lygar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.4.2022 | 18:27
Hann gæti alveg eins gefið upp nafnið
Einhver vildi kaupa hlutabréf fyrir 122 000 000 á markaðsvirði daginn eftir útboð - sennilegt?
87 LMR Partners 1.000.000 117.000.000 0,2222%
88 Monashee Investment Management 1.000.000 117.000.000 0,2222%
Kunningi hafi grætt milljónir eftir ábendingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Hnoðri
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar